Þessi er klassík og ekki af ástæðulausu! Combatið er frekar ryðgað miðað við þá nýrri en maður venst því þegar maður dembir sér í hann. Alls ekki fullkominn, structurið getur verið smá skrýtið og þegar hann líður á eru sumir staðir bara ekki nærrum því jafn góðir og það sem kom áður. En... það er eitthvað við hann sem lætur mig hoppa aftur í hann af og til. Bossarnir og allt ferðalagið í fyrsta helmingnum er svo magical eitthvað ennþá í dag (mæli með NakeyJakey vídeóið þar sem hann er í bólinu, hann útskýrir þetta vel). Skemmti mér vel með þessum, þrátt fyrir að hafa spilað DS3 á undan. Thank u Dark Souls.

Reviewed on Aug 28, 2022


Comments