geggjað cinematic atriði hérna og það eru algjörlega bestu hlutar leiksins. Mjög fallegur og gott level design en mér fannst enemy design vera smá skrítið og pirrandi stundum. Þessi leikur er alveg frekar stuttur, hann er næstum passlegur en mætti vera aðeins lengri. ég hef ekki hugmynd um hvað sagan er

krúttlegur lítill leikur, líka alveg drepfyndinn stundum.

afar skrítið fyrirbæri, þrautirnar eru frekar lélegar en þetta er bara fyndið og skemmtilegt

ein merkilegasta upplifun sem ég hef haft með leik. Erfitt er að lýsa þessum

klikkun, rosa intense gameplay með furðulegri tónlist og geggjuðum visuals, var smá vonsvikinn yfir því hversu lítið spennandi er í seinni helmingnum en þetta er lítill og skemmtilegur leikur samt sem áður

ég mun víst aldrei fyrirgefa mér það að hafa spilað allan leikinn með enga tónlist, hefði kannski hækkað um hálfa stjörnu. Þarf að spila þennan aftur en akkúrat núna finnst mér þetta bara vera helvíti góður metroidvania, en ekkert meira en það. ef ég spila hann aftur ætti ég að fatta hvað fólk elskar við hann.

Fyrsti soulsborne leikurinn minn og helvíti góð byrjun. Ekki jafn erfiður og ég hélt hann myndi vera, það voru bara nokkrir bosses sem tóku fleiri en 5 tilraunir. ég óvart valdi eitt besta loadout í leiknum úbbsí, allavega er alveg frábært ambiance hérna, mikið betra en t.d. í elden ring finnst mér

Þessi er svo nálægt því að vera fullkominn en síðustu hlutar leiksins eru bara ekki alveg nógu satisfying. Mér fannst ég þurfa að giska alltof oft í endanum, það er auðvitað einhver leið til að finna nákvæmlega hverjir allir eru en mér finnst það vera aðeins og flókið og létt að missa af. En ef Lucas Pope lærir af þessum leik þá gæti næsti verið algjört meistaraverk

Eh, merkilegar hugmyndir en þær passa dáldið illa saman

Spilaði í gegnum allan svona 4/5 af leiknum í einu session, síðan fer maður aftur til city 17 og þar missti ég áhugan, en þessi fyrsti 4/5 er algjör fullkomnun.

Bara mjög fínn leikur sem ég mun örugglega spila aftur eftir nokkur ár, skemmtilegar hugmyndir og alveg frábær endir

þetta er eins og evangelion af tölvuleikjum, það sorglegasta og mest niðurdrepandi sem maður hefur nokkurn tíman séð og svo er ógeðslega uplifting endir þar sem allir eru glaðir og sættast og hallelúja congratulations! Það eina sem dregur þetta niður eru gameplay hlutirnir, aðallega bara að dungeons og bossarnir sökka smá og eru langverstu hlutar leiksins