Að vera Íslendingur að spila þennan leik er soddið svindl af því við fáum bara straight up mikið betri upplifun með honum en allir aðrir.

Æjæjæj ég er soddið vonsvikinn. Allavega góð tónlist og góður heimur en allt hitt er smá piss.

Hvernig getur svona frábær leikur innihaldið svona mikið drasl og bull.

þessi er lúmskt frábær. Alltaf gaman þegar maður getur unnið leik á bara nokkrum tímum, það er gjörsamlega ekkert filler hérna.

Það er mjög leiðinlegt að sagan í þessum er svo lík öðrum leiknum, því sem leikur finnst mér þessi vera lang bestur. Það er mikið betri balance milli allra mismunandi hlutanna, climbing og shooting og þannig, að ég varð ekki jafn þreyttur á því á endanum eins og með hina tvo. En nú er sko komið að the big boy 4!

ég neita að gráta útaf mario leik

Vá! þessi kom mér á óvart! ég hafði spilað smá af honum fyrir löngu þegar ég fékk Game Boy-inn fyrst en eftir það hef ég bara nokkrum sinnum kíkt aðeins á hann en aldrei komist neitt lengra en seinni heiminn. Núna kláraði ég hann og það var eins og að spila fyrsta Super Mario Bros. í fyrsta skiptið aftur! Nema hann er bara svo skrýtinn! Það er underwater submarine shoot-em-up section! Mario fer til fokking Kína! og út í geim?!? Þetta er klikkað! sérstaklega fyrir Game Boy launch title.

Ótrúlegt, ótrúlegt alveg hreint

þessi minnir dáldið á hrunið 2008, aðeins alvöru sjomlarnir munu skilja

ég fokking hata fokking pinball

fínn leikur en verður frekar boring eftir nokkra klukkutíma

Eins og allir vita er þetta betri leikur en fyrsti á alla vegu, en af því þetta eru nákvæmlega sömu kerfi og í fyrtsa finnst mér sömu vandamálin vera ennþá til staðar, bara í mikið minni stíl. Shootouts verða aftur frekar repetitive, þótt að þessi reyni mikið meira að halda því merkilegu og það virkar oftast ágætlega. En það er bara alltof mikið combat, sem er ekki eitthvað sem á við flesta leiki. Mér finnst það svo leitt því það eru nokkur algjörlega frábær atriði hérna en þau eru svo sjaldgæf og það er svo mikið shooting, puzzling og climbing in á milli, og ekkert af því er frábært. Samt alveg mjög solid leikur og ég væri alveg til í að spila hann aftur einhvern tímann, kannski á easy til að minnka hversu mikinn tíma shootouts taka.

Það er skrýtið að pæla í því hvað puzzle-leikir geta grætt mikið á því að vera ekki mobile leikir. Bestu puzzle-leikirnir (The Witness, The Talos Principle, Portal 2) gerast allir í einhverjum heimi. það er ekkert einfalt interface sem maður fer í gegnum til að spila þrautirnar, heldur eru þrautirnar til inni í heiminum. Leikir eins og The Witness myndu samt virka vel sem einfaldir mobile leikir, en það sem gerist með mobile leiki er þeir eru svo ótrúlega ómerkilegir og ekki spennandi að fara í gegnum, eins og t.d. þessi. Puzzle hugmyndin er góð... en þetta er mobile leikur. Það er ekkert sem hook-ar mann í að halda áfram.

Ég elska þennan pretentious ass leik